Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hvað er líklegast að gerist í útilegunni ?

Frelsi

11. júní 2007 klukkan 01:53

Já ég hef brotið mig úr viðjum dróma sem hefur haldið aftur af mér nú í næstum annað hálft ár haldið mig frá skrifum á þessari síðu. Ég er kominn aftur sterkari sem aldrei fyrr og mun byggja gífurlegt veldi gegnum kanslarann.

Burt séð frá því þá er margt að frétta. Aron féll með skömm eins og flestir höfðu spáð en Ólafur og Aðalsteinn rétt náðu að halda sér með nokkrum kommum. Stórfréttir prófanna eru hins vegar þær að Guðmundur Reynir er í sögulegu lágmarki í einkunnum og hefur ekki sést svona lág meðaleinkunn í Eiðismýrinni síðan Guðmundur hinn eldri fékk undir 9,0 í meðaleinkunn árið 1884. Hefur þetta leitt til smá bakslags í metnað Guðmundar og sást hann á kráum bæjarins með góðkunningjum nokkrum klukkustundum fyrir leik.

Nú er sumarið komið og flestir ef ekki allir á leiðinni til vinnu á virkum dögum. Stefnt verður síðan á heljarinnar menningarför helgina 15-17. júní þar sem verður boðið upp á fjallgöngur, klifur og stólakast svo eitthvað sé nefnt. 

Þakkir dagsins fær Úlli fyrir að sjá loksins óslípaða demantinn sem æfir í 2.flokki karla um þessar mundir.
Takk 

Fannar Freyr Magnússon

Ljóð

20. apríl 2007 klukkan 14:46
Það mælti mín móðir
meðan vöggu mína hrærði
Nú andar suðrið sæla
og smáblóm titrandi deyr
Fannar Freyr Magnússon

Johnny In Space

22. mars 2007 klukkan 21:52

Vegna velsæmismarka hefur bloggið verið fjarlægt

Fannar Freyr Magnússon

21. mars 2007 klukkan 01:12
Já margt hefur drifið á daga mína síðan síðast. óvæntar fréttir héðan og þaðan. Stundum er lífið bara eitt stórt óvænt leikrit og það er ekki að koma vel út þessa daganna. Skólinn pfff. Kennarar horfa á mann fordómafullum augum af því að ég sit aftast og virðist ekki vera fylgjast en meðtek þó allan helvítis matinn sem þau mata upp í okkur.
Ökuprófs kennari sem heldur að hun sé drottning Frumherja og leyfir mér ekki að vita hvernig mér gekk því ég er ekki með stimpil. FOKKING tussan.
Kosningar í gangi. Asnalegi hlutur. Allir að dreifa bæklingum til allra. Bæklingarnir enda allir í ruslinu, þá kaupi ég mér nú frekar flugelda en að eyða í þessar helvítis prentsmiðjur. Alveg jafn vitlaust.
Allir krakkarnir með meðmæli frá sama fólkinu sem er hrætt við að missa atkvæði ef það tekur afstöðu með vini sínum. Þessi meðmæli eru öll einskins verð. Finnst mér að fólk ætti frekar að styðja sinn mann og taka afstöðu. Þeir sem eru síðan að fara i embætti gætu þá verið hlutlausir.
Þetta er asnalegt líf satt best að segja eina sem maður lifir fyrir er að spila fótbolta eins og einhver helvítis smákrakki. Af hverju get ég bara ekki aftur orðið fimm ára. Fótbolti á leiksólanum, fótbolti er ég kom heim og fótbolti eftir kvöldmat. Yndislegt alveg Yndislegt

Vil ég þakka Birni Ívari fyrir að veita hjarta mínu vonaryl um bjarta og komandi daga og sýna mér að óvæntir hlutir geta verið góðir.
TAKK




P.S. Marri stuðullinn er svona 1,75 segjum við og minn er 2.55 segjum það ;)
Fannar Freyr Magnússon

Den führer

19. mars 2007 klukkan 17:52
Já tilkynni ég hér með framboð mitt til kosninga í Menntaskólanum í Reykjavík. Mun ég bjóða mig fram í framtíðarstjórn og leggja hart að mér til þess að ná plássi þar.
Til þess að auka hæfileika mína í málsnilli hefur þýskur ræðuskörungur sent mér efni til að kenna mér og kallar hann sig Den führer. Hérna er smá brot af því sem hann sendi mér. http://www.youtube.com/watch?v=yf6_zKLbykQ 
Sjáið hvernig maðurinn beitir röddinni. Hann er ótrúlegur. Krafturinn og fegurðin svo á hann líka svo marga aðdáendur. Ég held að ég verði einhvern tímann svona.
Annars af framboðinu að frétta þá ætla ég mér mikinn í framtíðarstjórn. Helst ætla ég að nýta tækifærið og sýna leikræna hæfileika mína og leika í öllum kvikmyndum framtíðarinnar og videamus þáttum. Ég ætla að stuðla að því að framtíðin vinni keppnina á milli skólafélagsins, einnig langar mig að tryggja það að allir sem ætla að bjóða sig fram í inspector á næsta ári muni fá að mæta í sömu party-in til þess að það halli ekki á einn né neinn.

Vil ég þakki Den Führer fyrir að' vilja styðja mig fyirr þessa kosninga baráttu

TAKK

Fannar Freyr Magnússon

Ruby Tuesday

14. mars 2007 klukkan 16:25
Gvöð hvað ég elska Ruby-inn. Franskar með bræddum osti beikon bitum og ranch sósu er himneskt alveg. Ef ég verð kjörinn ætla ég að fá afslátt þar og hana nú. Já hef ég ákveðið að bjóða mig fram samkvæmt ráðum frá kosningastjóra mínum Magnúsi Erni Þórðarsyni.  Ætlum við að setjast niður og plotta hvernig best er að ganga frá mótframbjóðendum mínum yfir Pride and Prejudice. Já er þetta liður í valdafýsn minni sem mun ná hæstu hæðum um 35 ára aldur. Þið munup sjá eftir því ef þið kjósið mig ekki.  Annars er Inspectorinn ekki inni þessa stundina frekar out að vera inspector. Og Aron og Maggi. Ég er alltaf andlit skólans sama hvað þið segið.

Vil ég þakka Magnúsi Erni fyrir að smíða djöfullegt plan.
Fannar Freyr Magnússon

You know my name

07. mars 2007 klukkan 17:58
Jæja nú eru kosningar í nánd og eins og alltaf er Fannar Freyr Magnússon virkur í þeim. Eftir að hafa haldið mig til hlés síðustu tvær finnst mér um að gera að leyfa lesendum að benda mér á hvar ég nýtist MR best. Einnig eru uppi hugmyndir um að stofna smá veðmálastarfsemi í gegnum þetta.
Stuðullinn á mér að ég komist í það sem ég býð mig fram er 2.65 og ég er sérmerktur þannig að það má tippa á mig stakan. Einnig verður tippað í beinni virkt þegar kosningarnar verða og veðmál eins og hvað ég fæ mörg atkvæði vel tekin til greina. Veðmálastarfsemin verður virk í gegnum alla vikuna.
Endilega serndið mér pening og og ég gef ykkur líkur til baka.

Vil ég þakka öllum þeim sem munu styðja mig í þessari hatrömmu baráttu gegn hinu illa
Fannar Freyr Magnússon

The end

02. mars 2007 klukkan 00:50
  • Ólafur Sigurðsson 6 / 11%
  • Fannar Freyr Magnússon 0 / 0%
  • Aron Steinþórsson 10 / 19%
  • Aðalsteinn Eggertsson 2 / 4%
  • Sævar Kári Bogason 12 / 22%
  • Magnús Örn Þórðarson 0 / 0%
  • Guðmundur Reynir Gunnarsson 3 / 6%
  • Kristján Jónson 0 / 0%
  • Örn Sigurðsson 16 / 30%
  • Steinn Friðriksson 0 / 0%
  • Ógil atkvæði     5 / 9%
Kosning er lokið og voru flest atkvæði greidd til Arnar svo kom seppi og að lokum sigurður frá hvammstanga.
Til að kíkja hvernig atkvæði dreifðust á skóla eru úrslitin þannig.
MS  44 atkvæði
MR 5 atkvæði
Ógild 5 atkvæði
Aron telst sem MS-ingur eins og Magnús örn benti hérna skemmtilega á.

Vil ég þakka þjóðinni mikinn stuðning en um 210.000 voru á kjörskrá og kusu 54 sem gerir tæplega með grófri námundun 50% kjörsókn
TAKK

Aron, Örn og Sævar í góðu chilli í MS
Fannar Freyr Magnússon

Tomorrow never knows

01. mars 2007 klukkan 00:59
Já keppnin er hörð og verður lokað fyrir keppnina klukkan 23:26 1.mars. Mun ég þá rýna í niðurstöður kannananananrinnar.
Annars er það að fr´´etta að maður er á fullu í að komast í bílprófið svo maður þurfi ekki að hlaupa nakinn út um vesturbæjarlaug. Því það gersist ef prófið verður ekki komið í hús 12.apríl. Er þetta allt að koma og erum siggi stanga einnig kominn langt á veg með prófið. Annars virðist sem Peter griffin sé ekkert á fara á bak við stýrið því hann situr sem fastast á tölvustólnum.
 Þakkir dagsins fæ ég því ég vann húsverk í dag.
Það var ekkert :)

P.S. Óli þú varst búinn að lofa a leika við mig í dag og er það best fyrir þig og þína að þú standir við það
Fannar Freyr Magnússon

Beautiful

28. febrúar 2007 klukkan 00:50
Já vil ég gagnrýna Ásgerði Árnadóttur Snævarr Schram harkalega fyrir harkaleg ummæli um ástkæra skíðaferð okkar MR-inga. Vil ég benda henni á að María Björk er gífurlega skemmtilegt kvikindi sem á rétt á að vera alls staðar þar sem fjölmennt er. Auk þess erum við að fara á skíði og njóta útsýni Eyjafjarðar frá toppi Hlíðarfjalls meðan þú situr heima hjá þér full þú þarna litla máladeildarmanneskja.
Meðan ég man viltu kannski vinna fyrir mig á laugardaginn. Það myndi vera voða hentugt fyrir mig :).
Annars skulum við enda bloggið á fögrum manni sem var á blómaskeiði lífs síns þegar þessi mynd var tekin
TAKK Guðbjartur fyrir að velja þessa mynd fram yfir tugi annarra mynd sem þú tókst af mér.
Fannar Freyr Magnússon